TÍAN

Bifhjólaklúbbur Norðuramts

Næsti fundur

Næsti fundur er miðvikudaginn 16. maí 2012 klukkan 20.00 í Mótorhjólasafni Íslands

Fundir

  • Fundir eru haldnir vikulega í sumar, miðvikudagskvöld kl 20:00 í Mótorhjólasafni Íslands.
  • Allar skipulagðar ferðir á vegum Tíunnar skráðar í dagatalinu til vinstri á síðunni.
Aðalfundur Tíunnar 2012
Skrifað af Óli Pálmi   
föstudagur, 18 maí 2012

Við minnum á aðalfund Tíunnar sem haldinn verður á morgun, laugardaginn 19. maí, og hefst fundurinn klukkan 13:00.

Hefur þú ekki áhuga á að vera með í skemmtinefnd Tíunnar og hafa áhrif á skemmtanir á vegum okkar?
Ef svo er þá endilega mættu á aðalfund og gefðu kost á þér í skemmtinefndina, eða sendu póst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Okkur vantar alltaf eitthvað hugmyndaríkt og skemmtilegt fólk í skemmtinefnd sem er tilbúið að láta ljós sitt skína.

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
Fyrsta hjólaspyrnan í Íslandsmeistaramótinu
Skrifað af Óli Pálmi   
fimmtudagur, 03 maí 2012

Bílaklúbbur Akureyrar og Tían, Bifhjólaklúbbur Norðuramts, munu í sumar halda þrjár hjólaspyrnur þar sem keppt verður til Íslandsmeistara.

Fyrsta hjólaspyrnan í Íslandsmeistaramótinu fer fram laugardaginn 26. maí næstkomand. Tímataka hefst klukkan 13:00 og keppnin kl 14:00.

Keppt verður í átta flokkum:

  • Hippar 1100cc og undir
  • Hippar yfir 1100cc
  • Racer 900cc og undir
  • Racer yfir 900cc
  • F hjól 900cc og undir
  • F hjól yfir 900cc
  • Krossarar
  • Opinn flokkur

 

Keppt er í 1/16 sem er 100,5 meter. Spyrnan er fyrir mótorhjól á tveimur dekkjum og ökumenn verða að vera félagar í akstursíþróttafélagi innan ÍSÍ. Keppnin er keyrð á Pro-Tree og það þarf að vinna tvær spyrnur í hverri umferð til þess að halda áfram.

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
Fundur í kvöld og sumardagskráin byrjar
Skrifað af Óli Pálmi   
miðvikudagur, 02 maí 2012

Jæja, þá er vorið mætt og við ætlum því að fjölga fundunum hjá okkur og hafa þá vikulega. Frá og með kvöldinu í kvöld eru því fundir alla miðvikudaga kl 20:00 á Mótorhjólasafni Íslands.

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
Skoðunardagur Tíunnar og Frumherja
Skrifað af Óli Pálmi   
miðvikudagur, 02 maí 2012

Nú er komið að því að fara með hjólin í skoðun.

Skoðunardagur Tíunnar og Frumherja verður laugardaginn 2. júní frá klukkan 10:00 til 14:00.

50% afsláttur af hjólaskoðun, eða kr 3000. Grillaðar pylsur og gos. Glaumur og gleði.

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
1. maí
Skrifað af Óli Pálmi   
sunnudagur, 29 apríl 2012

Við ætlum að fara í fyrsta hópakstur ársins 2012 þann 1. maí. Hittst verður á Ráðhústorgi kl 12:30. Hópaksturinn fer frá Torginu kl 13:00 og endað aftur á Torginu.

Eftir hópaksturinn verður síðan haldið til Húsavíkur, lagt verður af stað kl 14:00. Náttfari, frá Húsavík, ætlar að taka á móti okkur við Ljósavatn og hjóla með okkur til Húsavíkur þar sem boðið verður upp á kaffi.

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
Fréttir af ferðanefnd
Skrifað af Óli Pálmi   
laugardagur, 28 apríl 2012

Ferðanefnd Tíunnar, eða amk hluti af henni, hittist nú á dögunum og setti niður smá áætlun fyrir sumarið, t.d. hvert ætti að hjóla eftir fundi í sumar.

Ákveðið var að setja inn eina dagsferð þann 23. júní. Upplýsingar um þessa ferð er hægt að sjá á dagatalinu hér til vinstri, eða með því að smella hér.

Einnig er hægt að sjá upplýsingar í dagatalinu um það hvert ætlunin er að hjóla eftir fundina.

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 1 - 11 af 358
 
Joomla Templates by Joomlashack