Logo Mótothjólasafn

TÍAN

Bifhjólaklúbbur Norğuramts

Meğ rísandi sól...
Skrifağ af Íris Björk Sigurjónsdóttir   
miğvikudagur, 17 febrúar 2010

 

 

Með rísandi sól...

Hverjir, hvar, hvernig og hvert - hinn íslenski bifhjólavettvangur

 

Á næstunni mun meistaranemi í verkefnastjórnun (MPM) við Háskóla Íslands vinna meistaraverkefni sitt. Viðfangsefnið er hinn íslenski bifhjólavettvangur – kortlagning vettvangs og hönnun skipulagslíkans sem endurspeglar hagsmuni, gildi og framtíðarsýn hins íslenska bifhjólamanns.

Hverjir, hvar og hvernig eru íslenskir bifhjólamenn? Hverjir eru hagsmunir þeirra, gildi og framtíðarsýn? Hvernig sér íslenskt bifhjólafólk vettvanginn þróast til framtíðar?

Þessum spurningum og mörgum fleiri verður svarað í vor þegar verkefninu lýkur. Könnun meðal bifhjólafólks mun fara í gang á næstu vikum. Til að niðustaðan verði marktæk er mikilvægt að allir þeir sem veljast í úrtak svari könnuninni. Niðurstaðan hefur upplýsinga- og þekkingarlegt gildi fyrir alla þátttakendur á hinum íslenska bifhjólavettvangi og verður til afnota fyrir þá sem vilja.

Munt þú leggja þitt af mörkum til að verðmætar upplýsingar og þekking líti dagsins ljós?

Leggðu þitt af mörkum og taktu þátt með rísandi sól!

 

Kynningarefni fyrir:

Meistaraverkefni í verkefnastjórnun

Háskóli Íslands vor 2010

Meistaranemi: Þórdís Rafnsdóttir

Leiðbeinandi: Runólfur S. Steinþórsson prófessor

ÞR/MPM - Janúar 2010 - Fyrirspurnir sendist á Şetta netfang er variğ fyrir ruslrafpósti, şú şarft ağ hafa Javascript virkt til ağ skoğa şağ




  Vertu fyrstur til ağ skrifa athugasemd

Ağeins innskráğir geta sett inn athugasemdir.
Vinsamlega skráğu şig inn eğa sæktu um ağgang.

Powered by AkoComment Tweaked Special Edition v.1.4.2

 
< Fyrri   Næsti >
 
Joomla Templates by Joomlashack