|
Skrifað af Íris Björk Sigurjónsdóttir
|
|
fimmtudagur, 15 júlí 2010 |
|
Kæru félagar, Nú er hátíðin okkar að ganga í garð og við höldum Hjóladaga 2010 með tilheyrandi skemmtilegheitum. Það skiptir okkur öll miklu máli að sem flestir taki þátt í dögunum en von er á hjólafólki hvaðanæva af landinu, sem við þurfum að sýna hvað við erum skemmtileg :) Dagskráin er eftirfarandi: Föstudagur 16.júlí: Hittingur á torginu ekki seinna en 20:00 með brottför hópaksturs kl 20:30. Hópreiðinni lýkur inn við Mótorhjólasafn þar sem verður sprell-lifandi tónlist á heimsmælikvarða. Aðgangseyrir er 500kell og er að sjálfsögðu allur til styrktar hinu nýja og glæsilega safni. Við stoppum hvergi nema troða í belgi, svo inn við safn verður boðið upp á Kaffi eða gos fyrir 200kr. Tían gefur síðan vöfflur með kaffinu og jafnvel líka með gosinu. Svo er það laugardagurinn 17.júlí: Kl 13:00 hefst skemmtun ÚA-planinu sem stendur til kl 17:00 Þar verður í boði Þrautabraut, kynningarbásar, swap meet, pylsuátskeppni, grill ofl skemmtilegt. Eins verður boðið upp á burn-out, ef einhver ykkar þorir að taka þátt. Kl. 18:00 hefst Mótorkross-mót á svæði KKA fyrir ofan Akureyri. Sniglabandið verður síðan á balli í Sjallanum, húsið opnar kl 23:30 og hægt er að kaupa miða í forsölu, bæði við Mótorhjólasafnið á föstudeginum, og ÚA-plani á laugardeginum. Stjórnin vill ítreka við ykkur sem gerið félagið svo skemmtilegt, að mæta sem flest og taka þátt. Án okkar þátttöku eru nefnilega engir hjóladagar svo við höfum heiður að verja. HÖFUM GAMAN SAMAN!!!
Aðeins innskráðir geta sett inn athugasemdir. Vinsamlega skráðu þig inn eða sæktu um aðgang. Powered by AkoComment Tweaked Special Edition v.1.4.2 |