|
Skrifað af Tían
|
|
miðvikudagur, 30 maí 2007 |
Landsmót BifhjólafólksHelgina 5.- 8. júlí 2007
Landsmótið 2007 verður haldið í Skúlagarði, við Ásbyrgi helgina 5. - 8. júlí 2007. Að vanda verður mikið um að vera. Smelltu HÉR til að sjá dagskrá og skoða kort. 22nd Annual bike meet in IcelandWeekend 5.- 8. juli 2007 The bikemeet is at Skúlagarður, click HERE for events and a map Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd |
|
Skrifað af Tían
|
|
miðvikudagur, 16 maí 2007 |
|
Eins og þið sem skoðið síðuna reglulega hafið tekið eftir þá er yfirleitt ekkert voðalega mikið um að vera hér. Eins og margir vita þá hef ég líka verið einn að brasast í þessu frá (og fyrir) opnun síðunnar. Nú er svo komið að við viljum fara að koma á vefstjórn sem sér um að koma efni á síðuna og halda henni lifandi. Í Tíunni eru nú skráðir hátt í 200 félagar og það getur ekki annað verið að í þeim hóp finnist fólk sem getur skrifað. Okkur vantar 2-4 meðlimi til að sjá um að skrifa á síðuna og þefa uppi, setja inn og laga til, efni frá öðrum. En helsta markmiðið er að halda síðunni lifandi. Athugið að viðkomandi þarf ekki að hafa vit á vefsíðugerð eða ofurnetkunnáttu. Áhugasamir geta haft samband við mig á netfanginu
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða í síma 863-8400. Einnig er hægt sýna áhuga á næsta fundi á fimmtudaginn kemur. F.H Stjórnar Gunnar Möller, Uplýsingafulltrúi Athugasemdir (1) |
|
|
Skrifað af Tían
|
|
miðvikudagur, 09 maí 2007 |
|
Þann 16. júní næstkomandi er ætlunin að halda mótorhjólasýningu á Akureyri. Sýningin verður haldin í minningu Heidda og er henni ætlað að vera fjáröflun til styrktar safninu sem unnið er að þessa dagana. Ekki er vitað til þess að haldin hafi verið alvöru hjólasýning á Akureyri áður, en gegnum tíðina höfum við sýnt hjólin okkar á bílasýningu BA á 17. júní og verður svo áfram. Sýningin 16. júní er haldin með fullu samráði við BA. Toyota á Akureyri mun lána okkur húsið sitt í þetta og er það eitt glæsilegasta sýningarhús bæjarins. Ýmsar uppákomur verða á sýningunni, og ef einhver er með hugmyndir er það vel þegið.
Er það von okkar að hjólafólk um allt land taki vel í þetta og mæti á sýninguna, og einnig að fólk láni hjól á sýninguna.
Til mikils er að vinna að koma til Akureyrar þessa helgi og verður mikið að gerast í bænum, þar má nefna Hjólasýninguna, bílasýninguna, burnout, míla, endurokeppni og margt fleira. Einnig er líklegt að Tían geri eitthvað sniðugt í tilefni dagsins.
Þeir sem áhuga hafa á að sýna hjólin sín eru beðnir að skrá hjólinn á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Fram þurfa að koma allar uppl um hjólið og eiganda (ekki er verra ef mynd og einhver saga hjólsinns fylgi ef til er). Það er takmarkað pláss, en við erum að leita eftir allavega hjólum, bæði nýjum og gömlum, þess vegna er um að gera að skrá hjólið svo við getum valið vel. Öllum sem skrá hjólin sín verður svarað eins fljótt og hægt er.
Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd |
|
|
Skrifað af Tían
|
|
miðvikudagur, 02 maí 2007 |
|
1. maí fór fram 1. maí síðastliðinn. Dagskrá dagsins heppnaðist vel og kunnum við Húsvíkingum þakkir fyrir góðar móttökur og góða súpu, einnig þökkum við Allanum fyrir lánið á húsinu og grillaðstöðunni. Í hópkeyslunni tóku þátt u.þ.b. 70 hjól, en það hefði mátt gera betur þar. Yfir 50 manns grilluðu síðan saman í sól og sumaryl við Allann eftir hópkeyrsluna. Myndir frá hópkeyrslunni er hægt að sjá HÉR. Okkur vantar myndir frá Húsavík og Laugaseli og einnig myndir af hópkeyrslunni teknar utan frá. Hafið samband við Gunna,
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða í síma 863-8400 Athugasemdir (1) |
|
|
Skrifað af Tían
|
|
fimmtudagur, 05 apríl 2007 |
|
Það er nokkuð ljóst að hjólin þróðust aðeins mismunandi í Bandaríkjunum og Evrópu eftur seinni Heimstyrjöldina og þá sérstaklega á sjötta og sjöunda áratugnum. Ég veit ekki hvort einhver hefur spáð í að þetta gæti verið ástæðan.  Amerískur kúreki og Amerískt hjól  Evrópskur knapi og evrópskt hjól Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd |
|
|
Um breytingu á umferðarlögum |
|
Skrifað af Tían
|
|
mánudagur, 02 apríl 2007 |
|
Nú þurfa allir að fara að vera í hlífðarfatnaði. En hver er lágmarkshlífðarfatnaður? um breytingu á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987, með síðari breytingum. 1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 72. gr. laganna: a. Við 1. mgr. bætast tveir nýir málsliðir sem orðast svo: Þá skal hver sá sem er á bifhjóli nota viðurkenndan lágmarkshlífðarfatnað ætlaðan til slíkra nota. Sama er um þann sem er á hliðarvagni, eftirvagni eða tengitæki bifhjóls. b. 2. mgr. orðast svo: Ökumaður á bifhjóli eða torfærutæki skal sjá um að farþegi yngri en 15 ára noti hlífðarhjálm. Þá skal ökumaður á bifhjóli sjá um að farþegi yngri en 15 ára noti viðurkenndan lágmarkshlífðarfatnað. Athugasemdir (2) |
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 21 22 23 24 25 Næsta > Síðasta >>
|
| Niðurstöður 254 - 264 af 274 |