Sanngirni í tryggingum mótorhjóla hefur lengi verið eitt aðal hagsmunamál Snigla sem og annarra mótorhjólamanna. Í gegnum tíðina höfum við mátt búa við það að verðlagning trygginga á mótorhjól sé ekki í neinu samræmi við verðlagningu á tryggingum annarra farartækja og einkennist af undarlegum afsláttartilboðum frá svimandi háu grunnverði (úr öllu samhengi við raunveruleikann) og skorts á raunverulegu mati aðstæðna. Eitt af því sem skort hefur til að ná yfirsýn yfir tryggingamál mótorhjólamanna er tölfræði og staðreyndir sem hægt er að nota til að kortleggja hvað við erum í raun að borga í samanburði við aðrar tryggingar og önnur lönd í kringum okkur. Tölfræði sem hægt er að skoða í samhengi við fjölgun á slysatíðni mótorhjóla síðastliðinna ára. Umferðarnefnd Snigla, í samstarfi við Hjólafólk.is, hafa útbúið könnun á tryggingarmálum mótorhjólafólks sem tekur mið af því að skrifa skýrslu um tryggingarmálin og byggja upp grunn að tölfræði sem nýtist okkur í þessu hagsmunamáli.Okkur langar einnig að biðja þá sem eiga gíróseðla með afsláttarlausu verði eða tilboð sem sína grunnverð og afslátt og eru tilbúnir til að sína okkur það að setja síg í samband við Indu, Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það / 868-5066
Það er nauðsynlegt fyrir áreiðanleika könnunarinnar að sem flestir og sem breiðastur hópur taki þátt í könnuninni, og hvetjum við því alla til að taka þátt og láta boð um hana ganga manna á milli. Ætlunin er að hafa hana í gangi út júlí og kynna niðurstöður hennar í lok sumars. Skýrslan verður aðgengileg öllum og grunntölfæði hennar þeim klúbbum sem áhuga hafa á að koma að þessu með okkur.
Þátttaka í könnuninni tekur þig u.þ.b. 10 - 15 mínútur og er hægt að nálgast hana hérna. (Tengill)
Umferðarnefnd Snigla


