|
Skrifað af Íris Björk Sigurjónsdóttir
|
|
miðvikudagur, 17 febrúar 2010 |
|
 
Með rísandi sól...Hverjir, hvar, hvernig og hvert - hinn íslenski bifhjólavettvangur Á næstunni mun meistaranemi í verkefnastjórnun (MPM) við Háskóla Íslands vinna meistaraverkefni sitt. Viðfangsefnið er hinn íslenski bifhjólavettvangur – kortlagning vettvangs og hönnun skipulagslíkans sem endurspeglar hagsmuni, gildi og framtíðarsýn hins íslenska bifhjólamanns. Hverjir, hvar og hvernig eru íslenskir bifhjólamenn? Hverjir eru hagsmunir þeirra, gildi og framtíðarsýn? Hvernig sér íslenskt bifhjólafólk vettvanginn þróast til framtíðar? Þessum spurningum og mörgum fleiri verður svarað í vor þegar verkefninu lýkur. Könnun meðal bifhjólafólks mun fara í gang á næstu vikum. Til að niðustaðan verði marktæk er mikilvægt að allir þeir sem veljast í úrtak svari könnuninni. Niðurstaðan hefur upplýsinga- og þekkingarlegt gildi fyrir alla þátttakendur á hinum íslenska bifhjólavettvangi og verður til afnota fyrir þá sem vilja. Munt þú leggja þitt af mörkum til að verðmætar upplýsingar og þekking líti dagsins ljós? Leggðu þitt af mörkum og taktu þátt með rísandi sól! Kynningarefni fyrir: Meistaraverkefni í verkefnastjórnun Háskóli Íslands vor 2010 Meistaranemi: Þórdís Rafnsdóttir Leiðbeinandi: Runólfur S. Steinþórsson prófessor ÞR/MPM - Janúar 2010 - Fyrirspurnir sendist á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd |
|
Skrifað af Íris Björk Sigurjónsdóttir
|
|
föstudagur, 05 febrúar 2010 |
|
Jæja þá er kominn föstudagur og þorrablótið okkar verður í kvöld. Húsið opnar kl 19 og maturinn verður kl 20 :) Sjáumst hress og munið að hafa pening með (ekki kort) fyrir matnum ;) Kv Íris Björk #93 Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd |
|
|
Minni á fundinn í kvöld !!!!! |
|
Skrifað af Íris Björk Sigurjónsdóttir
|
|
fimmtudagur, 04 febrúar 2010 |
|
Ætlaði bara að minna á fundinn í kvöld í Allanum kl 20. Svo auðvitað á þorrablótið annað kvöld. Hlakka til að sjá ykkur, kv Íris Björk #93 Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd |
|
|
Skrifað af Íris Björk Sigurjónsdóttir
|
|
föstudagur, 29 janúar 2010 |
|

Hið árlega Þorrablót Tíunnar verður haldið 5. febrúar næstkomandi á Oddvitanum. Húsið opnar kl. 19 og borðhald hefst kl. 20, Bautinn mun sjá um matinn. Enginn bar verður á staðnum þannig að þeir sem ætla að skola niður súrmatnum með einhverju blautu þurfa að koma með þann vökva sjálfir.
Greiddir félagar(2009) borga 2000kall (tveir fjólubláir), ógreiddir félagar og aðrir greiða 3500kr.
Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda póst á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
fyrir 4. febrúar.
Kveðja Íris Björk #93 Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd |
|
|
Skrifað af Íris Björk Sigurjónsdóttir
|
|
föstudagur, 22 janúar 2010 |
|
Þorrablót Tíunnar verður haldið 5. febrúar. Staðsetning augl. síðar. Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd |
|
|
Skrifað af Víðir Már Hermannsson
|
|
mánudagur, 18 janúar 2010 |
Sælir félagsmenn Snigla, nú líður að aðalfundinum okkar og langar mig að biðja þau ykkar sem greidduð 2009 félagsgjaldið en voruð ekki í Bifblíu og þá sem greiddu á félagsfundi að hafa endilega samband svo hægt sé að ganga úr skugga um að þið séuð skráð sem greidd. Vísbending um að þið séuð ekki skráð greidd er að hafa ekki borist Bifblía og einnig ef ykkur berst ekki aðalfundarboðið sem á að vera komið til ykkar á mánudaginn 25 janúar. Sendið mér línu á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Kveðja, Kristrún Tryggva Gjaldkeri Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd |
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
| Niðurstöður 67 - 77 af 274 |