Logo Mótothjólasafn

TÍAN

Bifhjólaklúbbur Norðuramts

Næsti fundur

Næsti fundur er miðvikudaginn 8. september 2010.

Eftir fundinn verður ÓVISSUFERÐ.

Fundir

  • Fundir eru haldnir á hverju miðvikudegi kl 20. í Mótorhjólasafni Íslands.
  • Allar skipulagðar ferðir á vegum Tíunnar skráðar í dagatalinu til vinstri á síðunni.
  • Hægt er að skoða fundargerðir af fundum stjórnar undir "Efni" og "Fréttir af störfum stjórnar og fundargerðir"
Lokaumferðir Íslandsmótsins í Enduro á Akureyri laugardaginn 5. September
Skrifað af Víðir Már Hermannsson   
fimmtudagur, 03 september 2009
 Lokaumferðir Íslandsmótsins í Enduro á Akureyri laugardaginn 5. September

Nú nálgast óðum lokaumferðir Íslandsmótsins í Enduro, en þær fara fram á aksturssvæði KKA laugardaginn 5. september. Þetta er jafnframt önnur Enduro keppnin sem félagið stendur fyrir á þessu ári. Stjórn KKA þakkar það traust sem félaginu er sýnt með því að standa fyrir 2/3 af þeim Enduro keppnum sem fram fara til Íslandsmeistara á árinu. Áhugi á þolakstri er mikill á Akureyri og metnaðurinn til að halda góða keppni ekki minni, verður þetta mót eflaust minnistætt mörgum þar sem landsvæði félagsins hentar einstaklega vel fyrir keppni af þessu tagi. Brautarlagningu er svo gott sem lokið en mikil vinna er eftir við merkingar.

Í stuttu máli er lagningu brautar þannig háttað að Baldurs deild, konur og 85cc flokkur aka hring sem ætti að vera tiltölulega auðveldur skemmti akstur. Öðru gildir um A flokk og tvímenning, þar verður allt að 40% leiðarinnar lögð í nýju landi - frekar tæknilegur hringur sem reynir á útsjónarsemi keppenda.

Við ráðleggjum öllum keppendum að ganga brautina fyrir keppnisdag og kynna sér leiðir.

Sjáumst hress á Akureyri helgina 5-6 .sept - með góða skapið og jákvæða hugarfarið í farteskinu.

Mótanefnd KKA

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
Er Hlífðarfatnaðurinn þinn CE merktur ?
Skrifað af Óli Pálmi   
miðvikudagur, 02 september 2009

Er Hlífðarfatnaðurinn þinn CE merktur ?

CE.gifSamkvæmt drögum að nýjum umferðarlögum er verið að skylda mótorhjólfólk á Íslandi til að nota staðlaðann hlífðarfatnað. Þarf allur gallinn þá að vera með CE merkingum sem þýðir einfaldlega að hann standist ákveðnar gerðir prófana, ef framleiðandi vill merkja hann þannig. Þetta eru Evrópureglur þannig að gallar framleiddir fyrir önnur markaðssvæði eru oftar en ekki án CE merkinga. Á Íslandi er löng og góð hefð fyrir notkun hlífðarfatnaðar og er Ísland líklega síðasta landið sem að þarf á slíkum lögum að halda. Norðmenn settu á svona lög fyrir nokkrum árum en drógu svo þá lagasetningu til baka þar sem að hún var talin ganga of langt. Íslenskt hjólafólk er á sama máli, og hafa Sniglar með stuðningi LÍM mótmælt þessari lagasetningu og lagt til að hún verði einskorðuð við þá sem hafa mótorhjól að atvinnu. Hjólafólk.is er að kanna hvernig galla fólk á hérlendis og hvort hann sé yfir höfuð CE merktur. Viljum við því biðja ykkur ágæta hjólafólk að taka þátt í þessari könnun til að hjálpa okkur í baráttunni. Við viljum semsagt að þú skoðir gallann þinn og sjáir hvort að hann sé með CE merkingum og hvort að einstakir hlutar hans innihaldi eftirfarandi staðla:

Hjálmar – ECE 22.05
Stígvél – CE EN 13634
Jakka og buxur – CE EN 13595
Hlífar – CE EN 1621
Hanskar – CE EN 13594
Gleraugu – CE EN 1938

Til að skoða hlífarnar gætir þú þurft að taka þær úr gallanum en staðallinn á að vera þrykktur í efnið. Á hjálminum er merkingin annað hvort aftan á eða á miðanum inni í hjálminum, sem og á öðrum hlutum. Þessi könnun gæti gagnast vel og mikilvægt að em flestir taki þátt og á sem skemmstum tíma. Taktu þátt. Hjólafólk á Íslandi notar hlífðarfatnað. Þess vegna þarf ekki að setja það í lög! Könnunin er hér á heimasíðu hjolafolk.is

 

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
Smáauglýsingar
Skrifað af Íris Björk Sigurjónsdóttir   
þriðjudagur, 01 september 2009

Jæja þá er búið að laga litinn í auglýsingar-dálknum okkar

þannig það er hægt að lesa það sem þar stendur.

Endilega kíkið á þetta og setja líka inn augl. ef þið hafið :)

Kveðja Íris Björk #93

Athugasemdir (1)

 
Grilli frestað
Skrifað af Íris Björk Sigurjónsdóttir   
laugardagur, 29 ágúst 2009

Daginn

Ákveðið hefur verið að fresta grillinu í Kjarnaskógi um óákveðinn tíma. Ný tímasetning verður auglýst síðar.

Fyrir hönd stjórnar

 Íris Björk #93

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
Akureyrarvaka - grill í Kjarna
Skrifað af Íris Björk Sigurjónsdóttir   
miðvikudagur, 26 ágúst 2009

Jæja fólk, þá er Akureyrarvaka að bresta á núna á laugardag.

Og ætlum við Tíufélagar að hittast í Kjarnaskógi hjá grillinu með fjölsk og grilla okkur pylsur ef veður leyfir.

Eina sem þið þurfið að koma með er ykkur sjálf, fjölskylduna og góða skapið. Mæting í kjarna kl 16.

Endilega kommentið hérna inni hvort þið komist :)

 

Sjáumst hress,

kv stjórnin.

Athugasemdir (2)

 
Fundur í kvöld
Skrifað af Íris Björk Sigurjónsdóttir   
mánudagur, 24 ágúst 2009

Minni á fundinn í kvöld í Allanum kl 20,

ætlum að keyra stærri Eyjafjarðarhringinn. 

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 100 - 110 af 274
 
Joomla Templates by Joomlashack